Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
4.30.24

Opið fyrir umsóknir um styrki til þátttöku á Tanzmesse 2024

Stærsti markaður fyrir samtímadans í Evrópu

Tanzmesse er stærsta messa fyrir samtímadans Evrópu og frábær viðburður fyrir tengslamyndun og kynningu á listamönnum, hópum og verkum.  Tanzmesse er haldin annað hvert ár í Dusseldorf í Þýskalandi.  Næsta Tanzmesse fer fram dagana 28. ágúst - 31. ágúst.  

Sviðslistamiðstöð Íslands verður með kynningarbás nr. 56 undir nafninu Dance from Iceland þar sem miðstöðin mun kynna úrval íslenskra dansverka fyrir gestum hátíðarinnar.

Alþjóðleg þátttaka og tækifæri

Tanzmesse laðar til sín fjölda erlendra gesta og veitir frábært tækifæri fyrir danshöfunda og framleiðendur til að kynna dansverk sín fyrir erlendum prómóterum, umboðsmönnum og hátíðarstjórnendum. Þátttakendum gefst jafnframt tækifæri til að kynnast öðrum dönsurum og danshöfundum frá öllum heimshornum.

Stuðningur frá Sviðslistamiðstöð Íslands

Sviðslistamiðstöð Íslands býður fimm danshöfundum eða framleiðendum dansverka, sem eru búsettir á Íslandi, 100.000 króna styrk til þátttöku á hátíðinni. Umsækjendur sjá sjálfir um að bóka og greiða fyrir ferðir og gistingu. Sviðslistamiðstöðin greiðir einnig fyrir aðgang að Tanzmesse, sem veitir aðgang að öllum viðburðum, fyrirlestrum og sýningum á hátíðinni.

Sæktu um núna

Við hvetjum áhugasama til að sækja um áður en umsóknarfrestur rennur út þann 21. maí klukkan 17:00.  Sótt er um  í Google umsóknarformi HÉR.

Nánari upplýsingar um Tanzmesse og hátíðina er að finna á https://www.tanzmesse.com/en/.